Nýi bankaráðsformaðurinn

… hefur forvitnilegt dómsmál á bakvið sig. Var sýknaður, en klárlega voru hlutirnir ekki í lagi.

Hann var sumsé endurskoðandi Tryggingasjóðs lækna og var kærður fyrir að hafa á árunum 1993-2001 vanrækt þá eftirlitsskyldu sem honum bar sem löggiltum endurskoðanda. Ákæruvaldið fór fram á að hann yrði sviptur réttindum og látinn greiða yfir 40 milljónir í bætur.

Hér er hægt að lesa frétt Morgunblaðsins um dóminn - nafn Gunnars kom svo fram í öðrum fjölmiðlum á sama tíma, sbr þennan þráð á málefnunum.

En mér skilst þetta mál hafi á sínum tíma þrátt fyrir sýknuna haft töluverð áhrif á vinnubrögð endurskoðenda hér á landi. Nokkuð ljóst má vera af fréttinni að dómurinn telur rannsókninni verulega ábótavant.

Í ljósi þess að stjórnvöld sitja undir ámæli fyrir skort á eftirliti, má þá ekki segja það orki tvímælis  og sé mjög óheppilegt til stjórnarformennsku yfir stærsta bankanum sé valinn endurskoðandi sem missti alveg af því þegar framkvæmdastjórinn dró sér 75 milljónir króna?

Viðbót 17:20: Var rétt í þessu að sjá tilkynningu um að Gunnar Örn hafi hætt við að taka að sér bankaráðsformennskuna.

3 tjásur to “Nýi bankaráðsformaðurinn”

  1. vilhjálmur tjáði sig:

    Svona á að velja menn.Glæpamenn af bestu gerð í Bankana og gamla tugthúslimi á þing.

  2. svansson tjáði sig:

    Ég held að enginn hafi nokkurn tímann sakað Gunnar um að hafa dregið sér fé eða nokkurn tímann hagnast á ólöglegu athæfi. Hvað hann varðar snerist þetta mál einungis um vanrækslu og að hafa ekki tekið eftir því að fé var skotið undan. Hann er sumsé ekki glæpamaður og ég hallast að því frekar en hitt að eyða þannig kommentum eftirleiðis ef þau bætast við, en bendi á málefnin fyrir áhugasama.

  3. svansson tjáði sig:

    [að gefnu tilefni ákvað ég einfaldlega að loka fyrir komment við þetta blogg. Það er engu við þetta tiltekna dómsmál að bæta og ég hef ekki áhuga á að menn séu að taka umræður um önnur mál sem kunna að tengjast þessum endurskoðanda hér. S]

Kannanir

Fyrirfinnst nokkur aumkunarverðari Íslendingur en Bubbi Morthens?

View Results

Loading ... Loading ...