Um mig

Hef bloggað reglulega frá árinu 2002 og hef megnustu skömm á moggablogginu.

Er árgerð 78, úr sveit, bý í dag í miðbæ Reykjavíkur og á kött, en annars lítið fyrir skepnuhald.

Hef síðan 2005 verið sjálfstætt starfandi við ýmis verkefni, en langoftast útgáfutengd. Tek að mér skrif, yfirlestur, umsjón með útgáfuverkefnum, auglýsingasöfnun og sitthvað fleira. Af fyrri störfum má nefna að ég var ritstjóri Stúdentablaðsins og blaðamaður á Fréttablaðinu.

Skrifaði reglulega á Deiglan.com frá 2001-2006. Var útgáfustjóri Vöku 2002 og lykilmaður í teyminu sem vann það ár fyrsta sigur félagsins í ellefu ár. Var á tímabili skráður í Sjálfstæðisflokkinn, en sagði áskriftinni upp með tilþrifum 1. október 2003 og hef varla viljað snerta á flokkspólitík með töngum eftir það - en hef þó enn töluverðan akademískan áhuga á fyrirbærinu.

Er með B.A. gráðu í hagfræði, og auk þess rúmar 40 einingar í sagnfræði. Hef grúskað mikið í íslenskri stjórnmálasögu á 20. öldinni.

Kannanir

Fyrirfinnst nokkur aumkunarverðari Íslendingur en Bubbi Morthens?

View Results

Loading ... Loading ...